Frétt

24. jan. 2012

Dagur leikskólans

Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín.

Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.

Dagur leikskólans er nú haldinn í fimmta sinn. Í tilefni dagsins hefur m.a. verið auglýst eftir gullkornum frá leikskólum landsins. Þau þurftu að vera lýsandi fyrir það nám sem leikskólabörn stunda og óskað var eftir mynd með. „Bestu“ gullkornin hafa verið valin á veggspjald og verður þeim dreift til leikskóla og sveitafélaga. Auk þess var óskað eftir myndböndum með stuttum viðtölum við leikskólabörn um leikskólalífið. Dæmi um spurningar sem þau svöruðu: Hvað lærir þú í leikskólanum? Hvað gera leikskólakennarar og hvernig eiga góðir leikskólakennarar að vera? Myndböndin verða notuð við ýmis tækifæri og reynt að koma efni þeirra á framfæri í fjölmiðlum.

Leikskólar hafa á undanförnum árum haldið upp á dag leikskólans með margbreytilegum hætti. Gaman væri að sjá sem flesta segja frá á heimasíðu leikskóla og sveitafélaga hvað á að gera í leikskólum í tilefni dagsins. Einnig bendum við á hugmyndabanka á heimasíðu FL. Þar má sjá hvað gert hefur verið á degi leikskólans síðustu ár en jafnframt hvetjum við starfsfólk leikskóla til að koma með nýtt innlegg í hugmyndabankann.

Við hvetjum alla sem koma að málefnum leikskólans á einn eða annan hátt, til að halda degi leikskólans á lofti og vonumst eftir góðri þátttöku.

Við bjóðum góðan dag, alla daga,

Torfhildur Sigurðardóttir
Formaður sameiginlegrar kynningarnefndar Félags leikskólakennara og Félags stjórnenda leikskóla

Sigríður Lára Ásbergsdóttir
Deildarstjóri í mennta-og menningarmálaráðuneyti

Björk Ólafsdóttir
Verkefnastjóri hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga

Hrefna Sigurjónsdóttir
Framkvæmdastjóri Heimilis og skóla -landsamtaka foreldra


Til baka



Aukaval


Fagfélög


Leturstærð og tungumál


Leit

Leitarvél
Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli