
24. jan. 2012
Mánudaginn 6. febrúar verður dagur leikskólans haldinn hátíðlegur í leikskólum landsins. 6 febrúar er merkisdagur í íslenskri leikskólasögu því þann dag árið 1950 stofnuðu frumkvöðlar leikskólakennara fyrstu samtök sín. Dagur leikskólans er samstarfsverkefni Félags leikskólakennara, Félags stjórnenda leikskóla, mennta- og menningarmálaráðuneytis, Sambands íslenskra sveitarfélaga og Heimilis og skóla. Tilgangurinn er að auka jákvæða umræðu um leikskólann, vekja umræðu um hlutverk leikskóla og starf leikskólakennara og kynna starfsemina út á við.
Lesa meira
20. jan. 2012
Skóla- og frístundasvið Reykjavíkurborgar heldur ráðstefnu fyrir leikskólakennara og annað starfsfólk leikskóla laugardaginn 4. febrúar í húsnæði Háskóla Íslands við Stakkahlíð. Ráðstefnan er haldin í tengslum við Dag leikskólans, en síðastliðin tvö ár hefur Leikskólasvið Reykjavíkurborgar haldið ráðstefnur á þessum tíma.
Lesa meira18. jan. 2012
Vakin er athygli á auglýsingu mennta- og menningarmálaráðuneytisins eftir umsóknum úr Sprotasjóði. Hlutverk sjóðsins er að styðja við þróun og nýungar í starfi leik-, grunn- og framhaldsskóla.
Lesa meira10. jan. 2012
3f, félag um upplýsingatækni og menntun, heldur námskeið fyrir leik- og grunnskólakennara í Verzlunarskóla Íslands mánudaginn 23. janúar og þriðjudaginn 24. janúar kl. 16:00-20:00 báða dagana.
Lesa meira4. jan. 2012
Orlofssjóður Kennarasambands Íslands óskar eftir að taka á leigu húsnæði til endurleigu sumarið 2012 fyrir félagsmenn. Bæði íbúðarhúsnæði og sumarhús koma til greina. Húsnæðið þarf að vera vel búið húsgögnum og uppfylla kröfur um góðan húsbúnað. Leigusali þarf að hafa reglulegt eftirlit með húsnæðinu. Fastur leigutími eru 8 vikur á tímabilinu 8. júní til 17. ágúst 2012.
Lesa meira
Lesa allar fréttir